22.5.07

Sudoku-krapp

Það er nú óneitanlega lítt spennandi að telja sig nokkuð kláran í einhverju en fá samt þessa niðurstöðu í smettið.



Bílów average mæ es. Reyndar gæti ég kennt vallaraðstæðum um (það er asnalegt lyklaborð á lappanum mínum) en burtséð frá öllu slíku þá á ég greinilega heilmikið inni. Tek út sumarfríið í bootcampsudoku-æfingarbúðum einhversstaðar (ef það væri svo hægt að sameina það með bjórdrykkju og svínakjötsáti þá væri það auðvitað optimalt).

18.5.07

Könnunarkrapp



Eftirfarandi samtal átti sér stað eigi alls fyrir löngu í gegnum GSM símtæki hins geðþekka góðkunningja æstra lesenda Krappetíkrappsins, æringjans Stilla Vebba:

(dring dring)

Stilli Vebba: Mjelló?

Fröken: Já Stilhjálmur? Sæll ég hringi frá Gapacent Callup. Má ég eyða nokkrum mínútum af þínum dýrmæta tíma í að hjálpa mammónískum stórfyrirtækjum að finna skilvirkari leið til að fá þig til að eyða sem mestum fjármunum í vörur þeirra og þjónustu?

Stilli Vebba (finnst frábært að einhver sýni honum athygli): Já þokkalega!

(Hefst þá spurningaleikur sem hefur greinilega aðallega það markmið að vita hvar Stilli versli spartlið sitt. “Hvorki né” er mjög algengt svar. Eitt sinn svarar Stilli því að hann telji vöruúrvalið vera meira í Byko þó hann hafi í rauninni ekki hugmynd um það, bara til að taka afstöðu í einhverjum af þeim brennandi málefnum sem bera á góma.)

Fröken: Að lokum langar mig til að spyrja þig nokkurra spurninga sem hjálpa til við úrvinnslu könnunarinnar.

Stilli Vebba: Æðisgengið.

Fröken: Hvað búa margir á heimilinu að þér meðtöldum?

Stilli Vebba: Umm... einn?

Fröken: Er það virkilega rétt?

Stilli Vebba: Nei reyndar ekki, svona strangt til tekið. Ég hagræddi sannleikanum. Ég bý heima hjá foreldrum mínum. Vildi bara ekki viðurkenna það. En það átti nú bara að vera tímabundin ráðstöfun. Sem er reyndar búin að vera tímabundin aðeins of lengi. Ég get reyndar litið svo á að heimili mitt takmarkist af herberginu mínu. Þá er ég bara einn á því heimili. Nema reyndar þá er tölvan hennar mömmu hérna inni og hún spilar dálítið mikinn kapal í henni.

Fröken: Ég skil. Næsta spurning. Hefur þú stundað framhalds- eða háskólanám?

Stilli Vebba (stoltur): Bæði! Ekkert smá menntaður!

Fröken: Hefur þú lokið háskólanámi?

Stilli Vebba (minna stoltur): Nei. Af hverju þurftirðu endilega að spyrja að þessu? Heldurðu að ég sé eitthvað stoltur af því að vanta þrjár skitnar sænskar einingar upp á að fá gráðuna? Þið Callup-pakk núið mér þessu um nasir í hvert einasta skipti sem ég leyfi ykkur að nota mig sem ódýra skoðanahóru. Hvers á ég eiginlega að gjalda?

Fröken: Afsakið Stilhjálmur minn, ég er nú bara að vinna vinnuna mína.

Stilli Vebba: Já það sögðu líka nasistarnir. Og verktakarnir í Álafosskvos.

Fröken: Þetta var nú óþarfi.

Stilli Vebba: Sorrí.

Fröken: Hversu oft hefur þú vaknað í eigin ælu á síðustu 12 mánuðum?

Stilli Vebba: Einu sinni. Reyndar mætti hafa það tvisvar, en það var þó sama ælan í bæði skiptin.

Fröken: Að lokum vil ég nefna að ég hef verið æstur lesandi Krappetíkrappsins til margra ára. Vefsetrið atarna stendur svo sannarlega undir nafni sem hjólnöf afþreyingarefnis á Veraldarvefnum.

Stilli Vebba: Já takk fyrir það. Ég skal skila því til míns góða félaga Villa Stebba.

Fröken: Fannst þér þessi könnun vera of stutt, hæfilega löng eða of löng?

Stilli Vebba: Of stutt. Ég hef ekkert þarfara að gera.

Fröken: Ollræt, flippað. Við verðum þá bara í bandi næst þegar þörf er á frekara áliti þínu á vörum og þjónustu ýmsra mammónískra stórfyrirtækja.

Stilli Vebba: Nó problem. Mæ plesjör. Puss och hej.

Fröken: Hej hej.

Stilli Vebba: Hej.

Fröken: Hej.

8.5.07

Bröllops-krapp

Undanfarið hefur gætt talsverðrar lægðar í birtingu mynda af hressu og skemmtilegu fólki að geifla sig á Krappetíkrappinu. Hér verður gerð bragarbót á því með þessu geiflmynda-extravaganza úr suðurnesja-brúðkaupi hjónanna Rúnars Leifssonar og Brynhildar Þórðardóttur. Vonandi fellur extravaganzað vel í kramið. Ókrýndur geifl-meistari dagsins var Kjartan Sigtryggsson. Að launum býðst honum að leggja æru sína að veði og skora aðalritara Krappetíkrappsins á hólm í hinu margrómaða borðspili "Lost valley of the dinosaurs".











































2.5.07

Rageagainsthemachine-krapp

Hin gagnmerka hljómsveit Rage Against the Machine spiluðu opinberlega saman í fyrrakvöld. Var það í fyrsta skipti í tæp 7 ár. Æðstaráð Krappetíkrappsins lýsir yfir fullum stuðningi við þessa þróun mála, og vonast til að sjá þá hressa með 16 ára ball í KA heimilinu um næstkomandi Verslunarmannahelgi.



Jútjúb er auðvitað orðið barmafullt af vídeóklippum í mjög vafasömum gæðum. Þetta vídeó er hársbreidd frá því að ná stemningunni hjá DJ Sigga Rún 5 mínútum fyrir lokun á Kaffi Ak. Down Rodeo og Renegades of Funk rokka feitt. Annars er fullt af þessu rusli hérna.

Fyrst ég er einu sinni byrjaður þá er vel þess virði að skella inn tilvísun á Tom Morello sóló í hressri kassagítarsverkalýðsstemningu. Skipulagsmistök af verstu gerð að hann skuli ekki vera að spila á Ráðhústorgi í tilefni af alþjóðlegum frídegi verkamanna. Þeir sem vilja sjá mjúku hliðina á Zack de la Rocha eru kvattir til að sjá og heyra hann spila og syngja mexíkóska þjóðlagatónlist af stakri snilld. Súra rúsínan í pylsuendanum er svo leiksigur Tom Morello í gestahlutverki í Star Trek Voyager. Assgoti súrt.

27.4.07

Hjónabandskrapp



Klerkar þjóðkirkjunnar tóku nýlega opinberlega afstöðu gegn hjónavígslu samkynhneigðra. Upplagt er því að minnast á að sértrúarsöfnuðurinn MOLINN (est. 1993) hefur frá upphafi beinlínis hvatt til hjónabanda samkynhneigðra og litið á þau sem fullkomlega jafngild öðrum hjónaböndum. Að auki er fjöldi einstaklinga í hjónabandi af hvoru kyni gefinn algjörlega frjáls í Molanum. Þannig gæti ég t.d. gengið að eiga alla meðlimi Arsenal klúbbsins á Íslandi án þess að það sé litið neinu einasta hornauga. Jafnvel skellt með nokkrum hressum BDSM iðkendum for gúdd mesjör. "Frelsið er yndislegt" eins og segir í gömlum sunnlenskum kvæðabálki.

Þess má geta að öllum nýskráningum í Molann fram til 1. júní mun fylgja ókeypis samverustund með Æðstaprestinum þar sem valið stendur á milli þess að spila Axis & Allies eða horfa á Howard the Duck. Ekki amalegur pakki það.

16.4.07

Nasdaq-krapp

Síðan ég hætti í skólanum (ath. ég nota ekki orðið "útskrifast") þá hef ég alltaf verið í sömu vinnu, en eins og er móðins í þessum síbreytilega kapítalístíska heimi þá valda skipulagsbreytingar því að batteríið hefur nokkuð reglulega skipt um nafn. Fyrst var það Fjármálalausnir, síðan Libra, svo TölvuMyndir, sem alþjóðavæddist í formi TM Software sem loks seldi okkur til sænska fyrirtækisins OMX. Rættist þar með langþráður draumur minn að fá netfang á forminu fornafn.eftirnafn@eitthvaðgroup.com. Þau gerast ekki mikið flottari.

Núna er ég farinn að venjast núverandi fyrirkomulagi nokkuð vel, en fæ svo þetta framan í mig eins og gusu af hráu kjötfarsi: Nasdaq sagt hafa boðið í OMX. Neita því reyndar ekki að það yrði nokkuð flippað að vinna á Akureyrarskrifstofu Nasdaq. Sem myndi reyndar innan tíðar breytast í Akureyrarskrifstofu alþjóðasamsteypunnar GloboCorp®. Sem yrði svo hvorteðer þjóðnýtt í byltingunni þegar markaðurinn mun implódera og öryrkjarnir erfa jörðina. Þannig að þetta er sennilega allt á réttri leið eftir allt saman.

Norðmannakrapp

Skelli hérna inn tveimur hressum Norðmannabröndurum úr hinu merka riti Hemliga dassboken.

Hvað færðu ef þú klippir A4 blað í tvennt?


Norskt púsluspil.

og

Hvað er 10 kílómetra langt og með greindarvísitölu upp á 23?

Norsk kröfuganga.

Vonandi getur RobbiK slegið um sig með þessu næst þegar hann fer í bissnessferð til Oslóar.

4.4.07

ULTIMATE LABYRINTH-krapp

Nú er loks hægt að avslöja því hér á Krappetíkrappinu að í vinnslu er enn einn leikurinn í hinni sívinsælu ULTIMATE leikjaröð, sem getið hefur af sér klassíkera svo sem ULTIMATE 10.000 og ULTIMATE GRAND MASTERMIND. Í þetta skiptið hefur ULTIMATE liðið ákveðið að takast á við að stafrænisera hið sívinsæla þýska þroskaspil "DAS VERRÜCKTE LABYRINTH" , sem ætti að vera hverjum sjálfsvirðandi spilaáhugamanni vel kunnugt.

Ekki nóg með það heldur hefur æðstaráð Krappetíkrappsins fengið leyfi til að birta EXXKLÚSíV skrínsjott úr þessum nýja byltingarkennda tölvuleik sem væntanlega munu æsa upp æsta lesendur Krappetíkrappsins um allan helming og vekja upp sterka þrá og löngun í að spila þetta meistarastykki ekki seinna en núna.







Leikurinn er væntanlegur um jólin 2007.

17.3.07

Citroën-og-Taunus-krapp

Nú hafa gamli tíminn og sá nýji endanlega runnið saman í eitt, því mér skilst að hin tuttugu ára gamla Citroën bifreið móður minnar (Gráni, A-257) sé nú orðin útbúin mp3-afspilunarmöguleika. Hvernig Gráni hefur getað verið nothæfur öll þessi ár án þessa er mér svo sannarlega hulin ráðgáta.



Aðrar fréttir tengdar bílaeign foreldra minna er sú að hinn hundtryggi Ford Taunus skutbíll föður míns (A-1773) fagnaði um daginn 25 ára afmæli sínu, og hefur örugglega aldrei verið sprækari en nú. Það er ekkert sem þjálfar upphandleggsvöðvana betur en að taka U-beygju á Taunusnum, sem þarf ósjaldan að gera í Þórunnarstrætinu þökk sé girðingarinnar sem aðskilur akreinarnar fyrir utan húsið.



Ég sá einmitt á skattframtali heimilisins að bílaeignin er metin á samtals 125 þúsund, Gráni á 59 þúsund og Taunusinn á 66. Yndislegt að eiga svona nægjusama foreldra (sem eru þó með flatskjá í eldhúsinu).

12.3.07

Fermingarkrapp

Eins og áður var lofað þá er æstum lesendum hér með boðið upp á FermingarhvalinnTM, enda ekki seinna vænna þar sem flóð ferminga mun brátt dynja á landsmönnum (æðstiprestur Krappetíkrappsins virðist samt vera undanskilinn þar sem honum hefur ekki verið boðið í fermingarveislu í óendanlega mörg ár).



Tilvalinn til að prenta út og nota framaná kort til fermingarbarnsins, nú eða stækka almennilega og gefa barninu hvalinn sem 1x2 metra plaggat.

Af sama tilefni er upplagt að birta hér fallega mynd af vini okkar Stilla Vebba á unga aldri, þar sem hann skartar klippingu sem á engan sína líka í gjörvallri veröld. Stilli hafði verið á mótþróaskeiði allan áttunda bekkinn og safnað þessum líka fína lubba. Þegar líða tók að fermingunni þótti móður hans (Felgu Hrímanns) heldur sárt að hún myndi ekki geta séð framan í blessað barnið á fermingardaginn og því leituðu mæðginin sátta í þessu máli. Málamiðlunin var fólgin í því að villti lubbinn var látinn halda sér að velflestu leyti, nema klippt var frá andlitinu með aðstoð reglustiku. Þar með fæddist þessi ódauðlega fermingarklipping.




Vert er að geta þess að Krappetíkrappið hefur undir höndum digital útgáfur af öllum fermingarmyndum samnemenda Stilla í bekknum 4.V úr ónefndum Menntaskóla. Þar stunduðu nám nafntogaðir einstaklingar svo sem Rarpa Heynis, Kauður Aren og sveitadrengurinn Hörn Bjuldar. Óhætt er að fullyrða að klipping Stilla bliknar í samanburðinum við listaverkin sem prýða sum af bekkjarsystkinum hans.

7.3.07

Mintukrapp

Var svo heppinn að fá ekkert-alltof-útrunnið prufueintak af þessum mintum upp í hendurnar í gær. Mér skilst að þær hafi ekki verið langlífar á íslenskum markaði, sennilega á fólk erfitt með að borða nammi úr sígarettu-skreyttum umbúðum. Bévítans pólítískt-rétthugsandi pakk.



En þeir ljúga því ekki að minturnar eru ferskar, þrátt fyrir að vera eilítið komnar framyfir síðasta söludag.

25.2.07

Þjóðfélagsumræðukrapp

Æðstaráð Krappetíkrappsins hefur ákveðið að eftirfarandi ljósmyndir skuli verða innlegg väfsätursins í þjóðfélagsumræðu síðustu daga:



Photo credit: Stefan Vilhjalmsson, www.kjotmat.is

25.1.07

Nýju jórvíkur-krapp II

Ég hef þann leiða ávana að eiga það til að taka myndir af sjálfum mér með hinum og þessum mætu einstaklingum, oftar en ekki með einhvern kjánalegan svip uppsettan. Þetta breytist ekkert þó ég fari til útlanda, það er nokkuð ljóst.

20.1.07

Nýju-jórvíkur krapp

Þá hefur æðstiprestur Krappetíkrappsins snúið aftur relatívt heill á húfi úr svallferð mikilli til Nýju Jórvíkur-borgar, USA. Þar upplifðum við Vari frændi kúltúrell extravagönz á borð við að panta stóra kók í bíó (og hafa möguleika á free refill á líterinn) og að fara á dvergvaxinn djassklúbb í dýpstu iðrum Harlem-hverfisins (afsakið ofstuðlunina). Gamli risaeðlunördinn í mér vaknaði til lífsins við að fara í Museum of Natural History (fórum síðan á Night at the Museum um kvöldið á gígantískum ÆMAX skjá til að maxa reynsluna, en sú mynd er lítið annað en tæknibrellurúnk eins og við var að búast), og ég kom sjálfum mér á óvart með því að hafa í rauninni gaman af því að skoða misgömul málverk eftir misgamla farta í Metropolitan Museum of Art. Við Vari hlupum reyndar í gegnum það safn til að geta neimdroppað sem flestum frægum förtum þegar við kæmum út (eins og Mónei, Warhol og Rembrant), en þau hlaup tóku samt 5 tíma.

Aðalpartíið var síðan auðvitað brúðkaupssvall Dabba Franz og Alexöndru Suppes, sem heppnaðist með eindæmum vel. Þar var samankominn rjómi Amerískrar æsku á sviði allskonar vísinda och fræða, sem var alltsaman indælisfólk. Það var alltént ekki erfitt að fá á tilfinninguna að það væru ekki margir á svæðinu sem styddu Bush-stjórnina. En þetta var hrottalega góð veisla, með brilljant mat og mjög hressandi svalli.

Um leið og færi gefst til mun æstum lesendum verða gefinn kostur á að berja myndir úr ferðinni augum. Á meðan eru æstir lesendur beðnir um að sýna biðlund.

31.12.06

Nýtt lag frá LBA-krapp

Hin gríðarlega áhrifaríka hljómsveit LBA hefur sett nýtt lag inn á hina vinsælu MySpace síðu sína. Eða eins og segir í fréttatilkynningu frá erlendum fjölmiðlafulltrúa sveitarinnar:

[kvót]
LBA
have posted a new song from the acclaimed album "Cannibal Nuns I" to their popular MySpace page, a song entitled "Gengid". Lyrically it deals with the foreign exchange rates of the Icelandic Krona as they were at 9:15 AM on the 16th of October in the year 1991. It features rare currencies such as the Portuguese Escudos and the Finnish Mark, as well as classic crowd-pleasing favourites including the Danish Krona and the Swiss Franc. All exchange rates are presented with an accuracy of at least 3 decimal places. The song itself features solid electric guitar work by Willy-with-short-hair-in-8th-grade accompanied by H.F. Olafsson's beautiful minimalistic percussion. Willy-with-long-hair-in-8th-grade delivers the exchange rates in his soothing baritone voice, which has since then become his world-wide trademark.

This song is yet another classic from one of Akureyri's all-time most influential bands.

[end kvót]

Áramótakrapp

Krappetíkrappið óskar sínum fjölmörgu æstu lesendum til sjávar och sveita til hamingju með árið.

Vegna einnar áskorunar: Áramótahvalurinn

14.12.06

Akureyrartónleikakrapp

Nú hefur hinn indæli drengur Gunni Jóh tekið málin í sínar hendur og mun lyfta Akureyrarkaupstað upp á óendanlega hátt menningarlegt plan með skipulagningu stórtónleika á laugardagskvöldið á Græna hattinum með Íbba Bjarklind og Lay Low. Æstir lesendur til sjávar och sveita eru hvattir til að mæta. Nánar hér.

Tetris-krapp



Mér þætti gaman að vita hvort læknisfræðin eigi fræðilegt heiti yfir það ástand að þykja hver dagur ófullnægjandi nema tekist hafi a.m.k. einu sinni að slá hægh-skorið í Tetris. Þetta er allavega frekar sjúklegt ástand, því verður ekki neitað.

8.12.06

Pantera-krapp

Þó John Lennon og Dimebag Darrell úr hinni geðþekku þungarokkssveit Pantera eigi báðir dánarafmæli í dag, þá er enginn vafi á því hvor þeirra skildi eftir sig feitara gítarriff:

7.12.06

Alpakrapp

Hef þegar fengið eitt tilboð í "dörtí wíkend" skíðapakka frá Brynjari þýðverja (eða meira svona drög að tilboði). Ástæðan fyrir því er bongóblíða og snjóskortur í Ölpunum um jólin, sem þýðir auðvitað að fólk flykkist til Akureyrar í staðinn.

Mér sýnist þessi gaur skemmta sér samt ágætlega í ölpunum þó enginn sé snjórinn, þannig að Brinni þarf nú ekkert að örvænta (sérstaklega ekki þar sem hann á lederhosen).