1.6.02

Tilbakadragníngskrapp plús Rymdbollakrapp

Ég verð víst að taka aftur þennan dóm minn um interfeis halezar sem ég slengdi fram í gær. Drengurinn tók sig til og fixaði pakkann þannig að nú fær það þrjár stjörnur af fimm mögulegum. Ég er ekki alvegn nógu sáttur við litasamsetninguna ennþá, en þetta kemur sennilega alltsaman. Við horfðum einmitt á hina yndislegu mynd "Det våras för stjärnorna" í gær, sem er sænska þýðingin á "Spaceballs". Svíar hafa nefnilega tekið upp þann fruntalega vitlausa sið að skíra allar Mel Brooks myndir "Det våras för"-eitthvað. Er þetta sennilega arfleifð frá því þegar fyrsta mynd Mella, "The Producers" hefur verið þýdd "Det våras för Hitler" (sem er eðlilegt þar sem lagið "Springtime for Hitler" spilar þar stóra rullu). Eftir það hafa sennilega komið "Det våras för Frankenstein", "Det våras för sheriffen" (Blazing saddles) og síðan "Det våras för Stjärnorna", sem ætti fræðilega séð að heita "Rymdbollarna". Svíar eru greinilega of sniðugir til að haga sér eins og menn þegar kemur að þýðingum.

Og talandi um þýðingar, þá er það alveg fruntalega óþolandi hvað téðir Svíar eru tregir að láta upprunalegan titil mynda fylgja með þegar þeir lista Dagskrá Kvöldsins í hinum ýmsustu miðlum. Þetta er svona hliðstætt við það ef að myndin "Á ystu nöf" væri auglýst sem laugardagsmynd Ríkisútvarpsins Sjónvarps og engar aðrar upplýsingar látnar fylgja með. Eins og alþjóð veit þá getur þessi titill átt við hvaða FanDamm/DolfLundgren/Svartsenägger/Stallón/StívenSígal-mynd sem er sem komið hefur síðustu 20 árin. Það er því ekki um annað að ræða en að láta það koma sér á óvart hvaða mynd er á ferðinni, eða einfaldlega finna sér eitthvað annað að gera, svosem bútasaum ellegar bróderí (sem hefur frekar verið fallið hjá mér upp á síðkastið).

Halez var alltént í því allt kvöldið að koma Speisbolls yfir á diggitalt format, og notaði hann til þess sína fruntalegu disjital myndavél. Hérna er einn rammi úr atriði seint í myndinni þar sem Svarta Hjälmen er að skýra Den Enstaka Stjärnan frá uppruna sínum.



Smellið á myndinna til að fá Speisbolls í heild sinni svo og leik Senegal og Frakklands í knattspyrnu. Krapp.

31.5.02

Freðkrapp, partur 2



Fyrirbærið á myndinni hér að ofan heitir á fræðimálinu "F.R.E.Ð.B.A.R.", det vill säga FREÐinn Beyjond All Rekognisjón. Þessa mynd tók halez af Farbrornum þegar hann var búinn að freðast fruntalega í kynningunni á lokaverkefninu. Internetnotendum til mikillar gleði þá er halez farinn að birta dokúmentasjónsresultöt sín á veraldarvebnum og er hægt að smella á freðna Farborinn fyrir frekari upplýsingar. Hann fær samt fjórar hauskúpur af fimm mögulegum fyrir interfeisið eins og það lítur út í dagsleginu.
Animalsexkrapp

Sá að einhver aum sál hafði ratað inn á Krappetíkrappið eftir að hafa slegið inn leitarorðið "animalsex" á leit.is (http://leitarvel.leit.is/query.html?&rq=0&qt=animalsex). Vonandi hefur sá einstaklingur fengið það sem sóst var eftir á Krappetíkrappinu, enda er köstomer sattisfaksjón lykilatriði í bissnesshugmynd okkar.

29.5.02

Kúrbítsblætiskrapp



Í krappinu hér fyrir neðan steingleymdi ég að minnast á mitt fruntalega kúrbítsblæti. Skal því öngvan undra að ég styðji hugmynd Farbror Geira heilshugar um að stofna "Kúrbítskastala Geira frænda". Hann er reyndar ekki mjög spesifíkur angående hvaða kúrbíts-tengdu aktiviteter myndu fara fram í þessum kastala, hvort téðir kúrbítar verði borðaðir eða hvort eitthvað annað notagildi verði fundið fyrir þá. Sem betur fer er mitt kúrbítsblæti það almenns eðlis að það skiptir í raun engu máli, ég verð daglegur fastagestur í þessum kastala í vilket fall som helst.

Það er líka ánægjulegt að heyra að Húgó frændi hefur sótt í gullkistu goðanna í Iron Maiden eftir innblæstri við ritgerðaskrif. Meiden hefur einmitt verið eitt af fáu sem hefur haldið mér með einhverjum sönsum þessa önnina. 20 eininga lokaverkefni Kölska. Krapp.

28.5.02

Krappblæti

Ég held að það sé hverjum manni og hverri konu hollt að hafa eitthvert blæti sem hann eða hún getur einbeitt sér að því að fullnægja ef svo leiðinlega vildi til að tómarúm myndi skapast í lífi viðkomandi einstaklings. Ég get alltént stoltur játað að hafa följande blæti:
  • Stafrófsblæti
  • "Djöst-add-woter"-mats blæti (ekkert sem kemur mér betur til en pakki af bollasúpu frá knorr)
  • Sokkablæti
  • Krappblæti
  • Dvergablæti
  • Svefnblæti
  • Letiblæti (tengt svefnblætinu)
  • IronMaiden-blæti
  • Fruntalegt dokjúmenteringarblæti (eins og myndasíðan mín er gott dæmi um)
Prumpukrapp

Greinilegt að ég er að fá útrás fyrir akkúmúleraða krappþörf. Þetta finnst mér og halez alltént geðveikt fyndið:



Jafnast ekkert á við góðan prumpuhúmor á þriðjudagseftirmiðdegi.
Kungen är död

Hvað finnst þér að Karl Gústaf konungur ætti að gera við hárlubbann sinn? Svo undrar expressen.se.



Ekki frá því að ég undri líka. Niður með mónarkíið! Lifi byltingin!
Freðkrapp

Dagurinn í dag var stór áfangi þar sem ég tók mig til og presenteraði lokaverkefnið mitt fyrir næstum því tómu húsi áhorfenda. Eftir kynninguna áttu tveir aðrir stúdentar að drulla yfir mig og mitt arbete, en ég varðist að sjálfsögðu með kjafti og klóm. Þetta tók samt á og ég held að ég hafi aldrei verið jafn freðinn á ævinni. Spurning um að fara og hrynja ærlega íða. Kíp on krappíng in ðe frí vörld.

Og auðvitað er R2D2 dvergur.. það eru bara flón sem halda annað.

27.5.02

Málþingið - Er R2D2 dvergur? Í hádeginu í gær, þegar ég, Drengur, Halez og Farbrorinn fórum og fengum okkur að éta spruttu upp gríðarlega málefnanlegar umræður um það hvort að dvergur sé inní R2D vélmenninu í Star Wars...farbrorinn hélt því statt og stöðugt fram við mikin hlátur viðstaddra.



Núna verð ég að viðurkenna að farbrorinn hafði rétt fyrir sér, enda er hann með blæti fyrir Star Wars.

Fór ég aðeins að forvitnast um þennan dverg sem heitir Kenny Baker og hvað það er sem hann gerir inní vélmenninu, svarið við því er að finna á FAQ á heimasíðunni hans:

What do you do inside R2D2?

I sit inside and listen to instructions, it can be very noisy in there at times, so you have to be alert. I have two levers to enable movement from side to side, but the I can only move 3 inches at a time.


Þetta er það besta sem ég hef heyrt lengi. Þeir geta gert róbóta á stærð við risaeðlur í Jurassic Park II en þeir geta ekki fjarstýrt R2D2!! Djöfulsins snilld.

25.5.02

Erótískt krapp

Enn ein heimsóknin frá RobbaK og halez var að sjálfsögðu dokjúmenteruð til helvítis Þar á meðal var tekin neðanstandandi mynd, sem er andsvar Krappetíkrappsins við öllum þessum krappí djammmyndum af einhverjum skjátum að slefa uppí hvoraðra sem tröllríða veraldarvebnum um þessar mundir. Við getum sko líka verið eggjandi...



Smellið á myndina fyrir meiri erótík.

23.5.02

Búhúkrapp

Gunnur Ósk "án efa" valdi Berta Stull Black Moððerfökker sem heitasta krapparann í gestabókinni. Mér finnst mér vera hafnað og er skapi næst að bresta í grát. Eða það sem betra er, koma mér vel fyrir framan sjónvarpið með stóra skál af jarðaberjaís og horfa á upptökur af gömlum Ricki Lake þáttum.

Get samt vel skilið að henni þyki hann heitur miðað við hvað þau eru innileg.

Krappfrei

Svona líka krappfrían dag hef ég ekki upplifað lengi..
Ein af þeim síðum sem ég heimsæki daglega er Tilveran. Oftar en ekki eru þar myndir af djamminu og tenglar á síður sem ganga aðeins út á það að birta myndir af sauðdrukknu fólki. Nú upp á síðkastið hafa þessar myndir orðið æ djarfari og djarfari og virðist sem að sá sem á stafræna myndavél geti fengið næstum hvaða kvenman sem er til að fletta klæðum.

Þess vegna hef ég ákveðið að fjárfesta í stafrænni myndavél. Svo er bara að fara í bæinn og reyna að tæla stúlkur til að vísa á sér brjóstin svo að ég geti sett það á heimasíðuna mína til að auka gestafjöldann.

Tjáðu þig á robbik.net Málþing - Djammmmmyndir

22.5.02

Errrorkrapp

Ég var að fá alveg stórkostlegan samkvæmisklæðnað í hús, himinbláan bol með hinum margfræga "Blue screen of death" áprentuðum, sem er mörgum Windblóws98 notendum að góðu kunnugur.



Nú finnst mér ég loksins vera tilbúinn að demba mér út á nörravinnumarkaðinn, og ekki seinna vænna.

errorwear.com er snilldarsíða með aragrúa af skemmtilegum villuskilaboðum sem hægt er að fá þrykkt á bol.
Íslandpalestínukrapp

Í leit minni að nýjasta kommúnistaproppagandanu eftir Jóa Króa endaði ég inni á heimasíðu samtakanna Ísland-Palestínu. Það fyrsta sem fangaði athyglina þar var frétt þar sem sagt var frá því að Hrafnkell Brynjarsson væri floginn til Palestínu að stunda sjálfboðavinnu á hernumdu svæðunum. Eins og alþjóð veit þá er Hrafnkell Brynjarsson betur þekktur undir listamannsnafni sínu, sem er Melli. Ég alltént fagna þessari frétt af öllu hjarta, og tel að heiminn vanti mjög hugsjónamenn eins og Hrafnkel sem eru ekki hræddir við að láta verkin tala (þó með fyrirvara um hvaða hugsjónir eru þar á ferðinni... hmm).

Það var samt eitt á þessari síðu sem fór óendanlega mikið í taugarnar á mér. Ég ætlaði mér að hægri smella á tengilinn yfir á fréttina af Mella til að geta sett inn beinan tengil hérna á Krappetíkrappinu, en þá höfðu flónin sem smíða þessa heimasíðu lokað fyrir hægrimúsarsmellingar með einhverju helv. javaskripti. Kommon, hversu paranoíd er hægt að vera? Ekki eins og það séu ekki til aðrar aðferðir til að skoða kóðann ef viljinn er á annað borð fyrir hendi. Þetta gerir ekkert annað en að pirra notandann, og þar á meðal mig. Ég varð alltént nógu pirraður til að álit mitt á þessum félagasamtökum fauk tímabundið útum opinn gluggann eins og lauf í vindi, og það álit mun ekki aukast aftur nema þessi notendavænleikaskandall verði lagaður eða ég beðinn formlega afsökunar sem saklaus internetnotandi.

Í pirranleika mínum ákvað ég að láta þá fá það óþvegið og "hakka" mig inní sourcekóðann. Sem ég og gerði (lítið tips: fúnkar bra að slökkva á javaskript). Afrakstur erfiðisins er þessi yndislega mynd af Hrafnkeli:



Hann horfir dreyminn til himna, en yndislegt. Hann þyrfti nú samt að fara í klippingu drengurinn.

21.5.02

Megakrapp

Íhaldspöddurnar farnar að nota hálfbert kvenfólk í kosningabaráttunni. Af hverju var einhverjum ekki búið að detta þetta í hug fyrr? Ég er líka alveg tilbúinn að sitja hérna böttneiked sveittur útí Svíþjóð og senda fólki heima smess til að minna það á að kjósa. Pantið þessa frábæru þjónustu með því að bæta við kommenti.

Smá gömul krappmynd af Ragga í tilefni af því:



Ríspekt...
Væri kannski ekkert verra að fara út að viðra sig.. eller??



Meira krappið...

20.5.02

Málþing
Ég dundaði mér við það í kvell að setja upp málþing (forum) á síðunni minn, þetta er ekkert official ennþá þar sem ég á eftir að tjúnna þetta til. Þarna gefst öllum tækifæri á að láta krappljós sitt skína og taka þátt í rauntímaspjalli.

Tökum nú höndum saman og sköpum okkar svæði á netinu, þar sem allir rífast og þrífast í sátt. Var þetta ekki klikkað kommersíal??!

Skráðu þig og tjáðu þig.
Snyrtilegt krapp

Gaman að sjá svona snyrtilega unga menn.

Biturleiki dagsins

Held að Maistró Davíð verði að fá prik fyrir að hafa á ákaflega bitran hátt ausið (ausað? jósað? jóst?) úr skálum reiði sinnar þegar enginn af hans íslensku vinum mætti á frumflutning á einu af tónverkum hans, sem átti sér stað í einhverju fjarlægu kommúnistaríki í stjörnukerfi langt, langt í burtu. Hann skrifaði mjög biturt rafrænt bréf til mín þar sem ég var látinn fá það óþvegið, og endaði hann skriftir sínar með því að segja að þeir sem ekki hefðu mætt gætu "étið hvað sem ykkur þóknast af affalli líkama ykkar mín vegna" (Franzson, 2002). Spurning um að byrja á tánöglunum og vinna sig svo hægt og bítandi upp á við.. eða hvað?

Maistró fær alltént fimm biturleikaprik fyrir þessa fallegu viðleitni.