26.1.09

Gestabókarkrapp

Krappetíkrappið hefur aldrei verið feimið við að blanda sér í pólitíska umræðu, hvort sem er á landsvísu eða í heimsmálum. Þess vegna mun þetta krapp fjalla um gestabækur.

Foreldrar mínir háaldraðir hafa kennt mér ýmislegt misgagnlegt, en af því gagnlega má nefna ágæti gestabóka. Það er sjaldan að einhver þrýsti nefbroddinum inn um dyrnar í Þór103 án þess að vera neyddur til að skrifa í gestabókina fyrir brottför. Enda eru til nokkrar útfylltar bækur í arkvívum heimilisins sem spanna meira en 30 ára búskap og eru einkar fróðleg söguleg heimild. Færslurnar eru misgóðar, þær bestu eru yfirleitt frá kvöldi 17. júní þegar árlegt Oddeyrargötugrill-svall fer fram. Um seinnipart 9. áratugarins var ekki óalgengt að hver 17. júní-gestur tæki sér heila blaðsíðu undir sína kveðju. Skrifaði endilega ekki endilega mikið en með þeim mun stærra og óskiljanlegra letri.

Besta færslan sem ég hef séð er þó frá upphafi þessa áratugar, einmitt úr svallpartíi, þó ekki 17. júní svalli. Þarna hafði ungur maður verið í heimsókn sem svo oft áður, og skrifaði síðla nætur stutta en hnitmiðaða kveðju sem ég ætla hér með að gera endanlega ódauðlega og deila með æstum lesendum Krappetíkrappsins. Nafn viðkomandi hefur verið ruglað með þartilgerðu tóli í MsPaint en það ætti ekki að hindra suma glögga lesendur að härleda sig fram til skrivarrens identítät, sérstaklega ef þeir hafa einhverntíman deilt skólabekk með höfundi. Smellið til að stækka.

8 ummæli:

Lady of Leisure sagði...

Þriðji besti frændinn. Humm það koma þrír til greina en hver var þriðji besti, það er stóra spurningin.

Farbror Willy sagði...

Já þetta er frekar erfið gestaþraut, ég veit.

Örvar sagði...

Mér finnst þetta stórkostlegt. Grunar að Sponni frændi hafi verið á Selfossi á þessum tíma og því saklaus ;)

Nafnlaus sagði...

Í mínum heimi er bara einn maður sem hefðu skilið þetta komment eftir í gestabókinni. Hann er svo ekki svona bíóljógískur frændi.

Snilldar færsla.
Kv
Dagsson

Farbror Willy sagði...

Reyndar er þetta ekki eftir þann sem þú heldur Dagsson. En sá maður hefur örugglega skilið gullkorn eftir í gestabókinni, aldrei að vita nema ég finni eitthvað meira djúsí.

JFK sagði...

Af skriftinni að dæma kemur bara einn til greina, nema þetta sé landlægur andskotinni í ykkar ætt...

Hadda sagði...

Áttu ekki bara einn frænda?

Farbror Willy sagði...

Ég á fjölmarga frændur, en það eru bara ákveðnir útvaldir sem komast nálægt því að verða Besti Frændi í Heimi.