Það er löngu tímabært að kynna til sögunar á Krappetíkrappinu pönk-þröngskívuna Burt með borgarastéttina með hljómsveitinni Burt með borgarastéttina, sem sést hér fyrir ofan í sínum upprunalegu umbúðum. Þessi pönk-þröngskíva var samin og tekin upp snemma í september og kemur nú loksins fyrir eyru almennings í formi ókeypis niðurhals (eftir strangt ferli við að færa upptökurnar af snældu yfir á mp3 þannig að sem minnst af hinum upprunalega pönk-anda glatist). Hljóðfæraskipan Burt með borgarastéttina er sem hér segir:
- Söngur: Hrafnkell
- 6 strengja gítar: Vilhjálmur
- Bassi: Þorgils, e.þ.s. Nolem
- Trumbur: Gunnar.jóhannesson
Pönk-þröngskívan telur heil 6 lög, en vegna mistaka í upptökustjórn þá lifðu aðeins 5 þeirra af á bandinu.
Hlaðið niður skívunni hér á mp3 formi!
Lagalisti:
1. Burt með borgarastéttina
Skívan sparkast í gang með titillaginu sem er kraftmikil pönk-epík... "allt sama helvítis hræsnarapakkið."
2. Tvatlskrift
Til að fyrirbyggja misskilning þá er riffið ekki stolið frá Purrkinum.
3. Útgubbuð kaffi karólína
Semí-átóbíógrafískt lag af gamla skólanum.
5. Sannleikurinn um Ægi Dagsson
Eins og skrattinn úr sauðaleggnum kemur kraftmikil og tilfinningaþrungin ballaða.
6. There's a long long road to dagverðareyri.
Þetta uppgjör textahöfundarins við gatnagerð í Hörgárbyggð er ótrúlegt áheyrnar.
Það er upplagt að njóta nokkurra ljósmynda af hljómsveitinni um leið og rennt er í gegnum þessa frumraun hennar (sem tekur u.þ.b. 8 mínútur að gera, og slær þar með við Tilf með Purrkinum um ca. 2 mínútur).
Hér spilar hljómsveitin 5 teninga yatszee ásamt því að snæða bobba og kleinur.
Yhatzhee blaðið var þéttskrifað.
Hér lenti hljómsveitin á popphjólinu og þurfti að spreyta sig á Afmæli með Sykurmolunum.
Mikil innlifun.
Að lokum ber að þakka menningarfélaginu Populus Tremula kærlega fyrir lán á upptökuaðstöðu.
4 ummæli:
Gott, mjög gott. Hver þarf lag númer fjögur? Ekki ég! Söngurinn í Dagverðareyri er náttúrulega bara snilld.
Til hamingju með útgáfuna! Eðalkrapp þar á ferð. Sömuleiðis fagna ég nýju útliti síðunnar, sem án efa á eftir að gefa ferskan blæ í grámyglu kreppunnar.
Heyrðu, fæ ég ekki pródúktíon kredit fyrir að standa aftan við þig meðan þú fluttir þetta í tölvuna?
Hey jú að sjálfsögðu David... ástæðan fyrir því að yfirföringin af analog yfir á digital tókst svona vel var að sjálfsögðu sú að ég hafði doktor í tónlist til að segja mér hvort og hvenær ég ætti að hækka gain-ið.
Skrifa ummæli