H.O.M.M.A.-krapp
Í gær fór ég í heimsókn til
Geira kippu. Þessi heimsókn gæti talist
fyrsta H.O.M.M.A.-partí 21. aldarinnar af eftirtöldum ástæðum:
Þar var einnig staddur Jói Grænkommi, stjórnarmeðlimur.
Hringt var í Húgó boss stjórnarmeðlim í gegnum gervihnött
Skoðaðar voru myndir af Bjölla stjórnarmeðlimi í dyravarðar-ham og Rúnari Leifs stjórnarmeðlimi meðvitundarlausum í jólasveinabúningi.
Gestir fengu að upplifa Jóa Grænkomma íklæddan engu nema einum stökum tennissokk (og það ekki á löppunum). Reyndar bara af myndbandi.
Gestir fengu að upplifa Geira kippu æla úr sér lungum og nýrum í sumarbústað í Borgarfirði. Það einnig af myndbandi.
Gestir fengu að upplifa Geira kippu íklæddan fölbleikum G-streng og sólgleraugum einum fata. ATH! EKKI AF MYNDBANDI.
Gestir fengu að upplifa Jóa Grænkomma kasta upp hrefnukjöti og gæsalifur utan í Sparisjóð Norðlendinga. ATH! EKKI HELDUR AF MYNDBANDI.
Þakka ég Geira kippu/frænda kærlega fyrir gott geim og Jóa Grænkomma fyrir velheppnaða heimsókn hans í höfuðstað norðurlands.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli