23.9.03

BANZAI-krapp

Tók eftir því um daginn þegar ég var á miðju kafi í eilífu kanalsörfi mínu að SkjárEinn er búinn að heita því að sýna snilldarþættina Banzai í vetur, ég fagna því mjög. Sá nokkra af þessum þáttum út í Svíþjóð og þótti þeir argasta snilld (og er viss um að hinn frómi fyrrum-skaufabæjarbúi RobbiK er mér hjartanlega sammála í því).

Það er reyndar ákaflega erfitt að lýsa þessum þáttum eða í hverju snilldin er fólgin, ætli það sé ekki næst því að kalla þetta jackass með austurlensku ívafi. Hinir fjölmörgu lesendur Krappetíkrappsins eru alltént hvattir til að kynna sér þessa þætti ef þessi sjónvarpsstöð skyldi gera alvöru úr því að senda þá út.

20.9.03

Leiðréttingarkrapp

Reyndar á Gunni Jóh. ekki afmæli fyrren í dag. Mæ misteik. En afmæliskveðjan stendur öngvu að síður fyrir sínu.

Einnig á nafni minn og forfaðir, Villi á Brekku, afmæli í dag og fyllir hann 89 ár. Gaman að því.

18.9.03

Gunna Jóh krapp

Ei alls fyrir löngu héldu eðalþjónninn Gunni Jóh og eðalkommúnistinn Melli af stað í reisu mikla á farartæki af tegundinni "rússi". Ætlunin var að keyra á rússanum til Seyðisfjarðar og taka þaðan Norrænu til Kaupmannahafnar og rúnta þaðan um heiminn. Helsta óvissuþátturinn í ferðinni var hvort rússinn umtalaði myndi yfir höfuð endast til Seyðisfjarðar, en síðast þegar ég frétti hafði það allavega gengið eftir með glæsibrag, enda um eðalfarartæki að ræða.

Ástæðan fyrir að ég brydda upp á þessu er að Gunni Jóh er aldarfjórðungsgamall í dag, og þar sem hann er ekki náanlegur þá verð ég bara að kasta einu stykki afmæliskveðju út í frumskóg upplýsingahraðbrautarinnar og vona að hún nái til hans.

Hérna er hægt að nálgast nokkur augnablik frá brottför rússans.

9.9.03

Sunnudagskrapp

Í gærmorgun var ég vakinn af símhringingu klukkan að verða 11, en þar á undan hafði ég sofið vært í þeirri trú að þann daginn væri sunnudagur. Sem betur fer tókst vinnufélaga mínum á hinni línunni að leiðrétta þann misskilning.

3.9.03

Dansbandskrapp

Ætli heitmey mín til margra ára, frk. Banna Hlandon, átti sig á því að hún er stödd í sama landi og gefur af sér svona snilldarinnar músík?

2.9.03

Svíaserverskrapp

Þessi bévítans svíaserver sem ég setti þessar myndir á er gjörsamlega ekki að gera sig. Ég sé að það koma líka einhverjar krapp villur ef ég reyni að fara inn á heimasíðu Molans, eða Ohgeath, sem eru einnig á þessum krapp server. Ætli þeir séu búnir að uppgötva það að ég er löngu fluttur frá Svíþjóð og nota þessa aðferð til að hefna sín á mér í sænskum biturleika sínum. Það kæmi mér ekkert á óvart. En einhver á svo sannarlega eftir að gjalda fyrir þetta. Hvert eiga dyggir fylgjendur Molans að snúa sér ef þeir hafa ekki aðgang að hinni Heilögu Ritningu á alnetinu? Flestir ættu reyndar að kunna hana utanað en samt sem áður...

1.9.03

Meira myndakrapp

Svo virðist sem þessi sænski fasistasörver sem ég sett myndirnar á sé með einhverja stæla. Það koma einhver vinaleg "fæl not fánd" skilaboð á vinalegri sænsku ef ég smelli á þessa linka sem ég setti inn, hins vegar er hægt að kópera adddressuna, opna nýjan bráwser glugga, kópera hana þar inn og þannig ná í myndirnar. Þetta er svo mikið krapp að ég get vart orða bundist. Kannski akkúrat sú týpa af krappi sem þessi síða gefur sig út fyrir að miðla til umheimsins, þannig að þetta er máske hið besta mál.
Myndakrapp

Mér sýnist þessar myndir sem ég ætlaði að setja hingað inn ekki alveg vera að gera sig fyrir hinn almenna tölvunotenda. Málið er í athugun.

Á meðan er hægt að sjá halez och Räx hjer och R. Steik ásamt DJ Kjartani er hægt að berja augum hjer.

30.8.03

Halez och Räx krapp

Og fyrst ég er á annað borð í stuði þá vill jeg hjer presentera fallega mynd af þeim Johnson bræðrunum, Halez och Räx. Gaman að segja frá því að Halez var einmitt svo heppinn að vera að fara í hnéaðgerð sama dag og Fú Fæters tónleikarnir voru. Var þá úr vöndu að ráða fyrir mig að ráðstafa miðanum hans en svo skemmtilega vildi til að Geiri kippa var aleinn og miðalaus þannig að af einskærri góðmennsku minni þá seldi ég honum miðann. Og okraði næstum því ekki neitt. Nú þarf ég ekki að gera góðverk aftur næstu 39 árin.



En eftir sat Halez greyið með sárt hnéð. Það gengur bara betur næst.
Megakrapp

Á meðan dyggir lesendur Krappetíkrappsins bíða eftir þýsku klámljósmyndinni úr steggjapartíinu hans Berta Stull, þá er hægt að svala fýsnum lesendanna tímabundið með þessari mynd:



Ef lesandinn gefur ímyndunaraflinu lausann tauminn þá er nokkuð víst að ýmsar áhugaverðar kenningar geta komið upp varðandi hvað það er sem lætur R. Steik setja upp þennan indæla svip.

9.8.03

Steggjakrapp

Ég er með í bígerð að reyna að komast í skanna svo ég geti birt hérna einu myndina sem var tekin í steggjapartíi Berta Stull sem haldið var honum að óvörum ekki alls fyrir löngu. Fyrir forvitna get ég uppljóstrað að á þessari mynd kemur bæði fram þýskt klám og kjánalegt höfuðfat. Ekki amalegt það.

Lesendur Krappetíkrappsins (sem án efa skipta hundruðum um þessar mundir) geta því beðið spenntir.
Krappetíkrapp

Ég held að aldrei hafi slagorð síðunnar um að aldrei hafi jafn fáir krappað jafn mikið átt eins vel við og nú. Ég er reyndar að hugsa um að skipta út "aldrei" fyrir "sjaldan", enda getur verið stórhættulegt að alhæfa svona á opinberum vettvangi.

23.7.03

Jessssööööríbooobbb

1.7.03

Jesssöríbob

20.6.03

???
Mj?krapp

? dag ger?ist s? merki atbur?ur a? ég flutti heim til m?mmu. Ekki seinna v?nna segja sumir. Langa?i bara til a? deila ?essu me? umheiminum, enda er ?a? nokkur v?st a? hann er stoltur af mér eins og hann leggur sig.

5.6.03

Krapp?

Hvað í krappsins nafni er eiginlega í gangi?

4.4.03

San-Fran krapp

Fyrir þá sem eru staddir á stór-San-Fransisco svæðinu þá gæti þetta verið eitthvað fyrir ykkur.



Þetta á víst að vera Dabbi, en mér sýnist þetta vera einhvert Cosmopolitan Swimsuit Issue módel, þetta getur nú varla verið Davíð.
Mjámjákrapp

Hermenn falla í átökum um flugvöllinn í Bagdad segir Mogginn. Var búist við einhverju öðru spyr ég?

19.3.03

Mamamjámjá