30.8.03

Halez och Räx krapp

Og fyrst ég er á annað borð í stuði þá vill jeg hjer presentera fallega mynd af þeim Johnson bræðrunum, Halez och Räx. Gaman að segja frá því að Halez var einmitt svo heppinn að vera að fara í hnéaðgerð sama dag og Fú Fæters tónleikarnir voru. Var þá úr vöndu að ráða fyrir mig að ráðstafa miðanum hans en svo skemmtilega vildi til að Geiri kippa var aleinn og miðalaus þannig að af einskærri góðmennsku minni þá seldi ég honum miðann. Og okraði næstum því ekki neitt. Nú þarf ég ekki að gera góðverk aftur næstu 39 árin.



En eftir sat Halez greyið með sárt hnéð. Það gengur bara betur næst.
Megakrapp

Á meðan dyggir lesendur Krappetíkrappsins bíða eftir þýsku klámljósmyndinni úr steggjapartíinu hans Berta Stull, þá er hægt að svala fýsnum lesendanna tímabundið með þessari mynd:



Ef lesandinn gefur ímyndunaraflinu lausann tauminn þá er nokkuð víst að ýmsar áhugaverðar kenningar geta komið upp varðandi hvað það er sem lætur R. Steik setja upp þennan indæla svip.

9.8.03

Steggjakrapp

Ég er með í bígerð að reyna að komast í skanna svo ég geti birt hérna einu myndina sem var tekin í steggjapartíi Berta Stull sem haldið var honum að óvörum ekki alls fyrir löngu. Fyrir forvitna get ég uppljóstrað að á þessari mynd kemur bæði fram þýskt klám og kjánalegt höfuðfat. Ekki amalegt það.

Lesendur Krappetíkrappsins (sem án efa skipta hundruðum um þessar mundir) geta því beðið spenntir.
Krappetíkrapp

Ég held að aldrei hafi slagorð síðunnar um að aldrei hafi jafn fáir krappað jafn mikið átt eins vel við og nú. Ég er reyndar að hugsa um að skipta út "aldrei" fyrir "sjaldan", enda getur verið stórhættulegt að alhæfa svona á opinberum vettvangi.

23.7.03

Jessssööööríbooobbb

1.7.03

Jesssöríbob

20.6.03

???
Mj?krapp

? dag ger?ist s? merki atbur?ur a? ég flutti heim til m?mmu. Ekki seinna v?nna segja sumir. Langa?i bara til a? deila ?essu me? umheiminum, enda er ?a? nokkur v?st a? hann er stoltur af mér eins og hann leggur sig.

5.6.03

Krapp?

Hvað í krappsins nafni er eiginlega í gangi?

4.4.03

San-Fran krapp

Fyrir þá sem eru staddir á stór-San-Fransisco svæðinu þá gæti þetta verið eitthvað fyrir ykkur.



Þetta á víst að vera Dabbi, en mér sýnist þetta vera einhvert Cosmopolitan Swimsuit Issue módel, þetta getur nú varla verið Davíð.
Mjámjákrapp

Hermenn falla í átökum um flugvöllinn í Bagdad segir Mogginn. Var búist við einhverju öðru spyr ég?

19.3.03

Mamamjámjá

31.1.03

Heja Sverige-krapp

Ljósi punkturinn í skammdeginu þessa dagana er sú staðreynd að Svíabastarðarnir eru dottnir útúr HM.

Hérna er dæmigerð sænsk anal-ýsa um hvað fór úrskeiðis: Aftonsnepillinn

17.1.03

Fréttablaðskrapp

Ánægjulegt að sjá hvað fólk sem ég þekki á auðvelt með að rata á síður hins mikla snepils fréttablaðsins. Fyrst var Nafni orðinn vesturstrandarrappari, síðan varð Berti Stull burtfarinn og nú síðast í gær var því slegið upp á forsíðu að ættarsetrið í föðurættina væri orðið miðstöð kvótabrasks á Íslandi. Ekki amalegt það. Útgerðarmaðurinn (ku vera föðurbróðir minn) gerði nú svosem ekki mikið úr þessu, enda birtist uppföljarinn á blaðsíðu 11 í dag.

10.1.03

Burtfararkrapp

Hef heyrt að gleðidauðarokkshljómsveitin OHGEATH hafi í fyrsta skipti í mannkynssögunni ratað á síður Morgunblaðsins í dag í sambandi við burtför hinns rómaða gítarsnillings Berta Stull Black Mofo.

Þetta er sko ástæða til að fagna (gefið að nafn hljómsveitarinnar hafi verið stafað rétt). Megi Berti burtfarast með sæmd.

United in hate!

6.12.02

Jaxlkrapp

Ég held sveimérþá að það þurfi einhver að gefa Atla togarajaxli nýja smásagnasafnið hans Davíðs (þó ekki Franzsonar, harhar) í jólagjöf. Held að það myndi gleðjann mjög.

Sé að Jaxlinn hlekkjar á Krappetíkrappið undir formerkjum að þar sé að finna Villa Stebba, víst er það rétt að vissu leyti, en því má ekki gleyma að Krappetíkrappið er samátak margra margbrotinna einstaklinga, hver með sínar ólíku skoðanir. Er þaggi strákar?
Überskrítið

Fékk þennan überskrítna póst í dag:

Góðan dag
ÜberMofo heiti ég og er að vinna hjá Über ehf..
Erindið mitt er spurning um það hvort að þú tengist Übervegi 5 í
Sandgerði á einhvern hátt.
Vinsamlega svaraðu mér sem fyrst

Kveðja ÜberMofo
sími 1-800-ÜBER
netfang
ÜberMofo@Über.is


Mér þykir þetta hið dularfyllsta mál.

ps. staðreyndum hefur verið hagrætt til að vernda viðkvæmar sálir.

24.11.02




mums...
Listamannsnafnskrapp

Ég hef ákveðið að taka upp listamannsnafnið f. willy að hætti austurstrandarrappara... eða voru það vesturstrandarrapparar? Hú givs a flæíng rats ass.